<$BlogRSDUrl$> hits.

Wednesday, October 18, 2006

UK 23. nóvember!!!!

Já, ég ætla að skella mér til hennar Oddný Cöru í heimsókn!! Ég hef ekki farið til annarra landa en USA síðan ég fór í útskriftarferð til Grikklands 2001!! Sem gerir 5 ár thank you very much!!!! þannig að það er kominn tími til að ferðast aðeins. Ekki það að ég hafi ekki flogið nógu oft til USA þessi 5 ár, en þið vitið hvað ég meina. Og kominn tími til að fara í heimsókn til vinkonu sinnar loksins. Jey, hlakka til.

Heyriði, How to Look Good Naked í imbanum. Ég ætla að horfa aðeins, sjá hvað þeir hafa að segja um svona konur eins og mig;)

Tuesday, October 10, 2006


Neh....hver mætir á svæðið....

Ákvað að sýna smá lit og skrifa inn línu eða svo. Annars er nú líf mitt bara svo ómerkilegt eiginlega að ég hef bara ekkert að segja. En það verður bara að hafa það.

Hvað er ég búin að vera að gera....tja, umturnaði herberginu mínu. Blái liturinn fékk að víkja fyrir brúnleitum. Skrifborðinu hennt út og kommóða sett inn fyrir öll fötin sem búið er að kaupa í Ameríkunni. Það á eftir að setja hillur upp, en búið að kaupa LCD skjá svo mín geti legið upp í rúmi og glápt á imbann. Já, herbergið er bara nokkuð flott svona.

Svo er ég bara búin að vera að vinna í henni frábæru Tvö Líf síðan ég kom heim. Milli þess sem ég vinn að þá sef ég og hangi bara. Ekki eins dugleg í ræktinni eins og ætla skal, en kílóin þurfa samt að fara að fjúka sökum væntanlegrar offitu undirritaðar. Veit einhver um góðann einkaþjálfara?? Endilega látið mig vita. Já, haha...verður að vera í baðhúsinu þar sem ég á kort þar. Hvernig er það Harps, er Linda með einkaþjálfara réttindi? Ég gleymdi að spyrja hana um daginn.

Anywho, pappy rapp átti ammli í dag og kom stórfjölskyldan saman á Rauðalæknum og borðaði fried chicken og svo súkkulaðikaka og ís í eftirmat. Nammi namm. Við erum alveg 17 allt í allt orðin, 18 með Nóa (sjá mynd fyrir ofan af bróðir mínum). Við eigum eflaust ekkert eftir að stækka á næstunni þar sem við Bergþóra eigum ekki einu sinni mann (umsóknir skal sendast á Rauðalækinn).


Hey og já, áður en ég hætti....

ALLIR AÐ KOMA Í TVÖ LÍF Á FIMMTUDAG MILLI 5 OG 8.....15% AFSLÁTTUR AF ÖLLU, GLAÐNINGUR FYRIR ALLAR SEM VERSLA, STÍLISTI Á SVÆÐINU OG LÉTTAR VEITINGAR!!!!!!

Og mín verður auðvitað á svæðinu tilbúin að afgreiða;)

Knús og kram...og já, hitti hana vinkonu mína, KMH, ásamt foreldrum í Smáranum í dag. Algjör rúsínu skonsa þar á ferð!!!!!


This page is powered by Blogger. Isn't yours?