<$BlogRSDUrl$> hits.

Sunday, June 13, 2004

Jamms og jæja....

Rosalega er mar duglegur í blogginu.....hehehe...
Það er nú örugglega bara vegna þess að það er ekki búið að vera mikið að ske. Er búin að vera að vinna, fara í ræktina og hanga heima hjá mér. Skemmtilegt:) Fór út ú gær. Stefnan var tekin á Mojitos, þar sem að þeir sem eru eldri en 25 og einhleypir skemmta sér greinilega, og við stoppuðum þar stutt:) Svo fórum við á Glaumbar og vorum þar til um hálf fimm. Ágætis skemmtun þar og var kjellan edrú. Mest furðufuglur landsins voru þarna held ég. Allt frá dvergum og feitum, pattaralegum kerlingum upp í síðhærða rokkara með fléttur.
Í dag fórum við Bergþóra ásamt honum Guðna frænda í bíó á Harry Potter 3. Hún var nú bara ágæt. Ekkert sem kom mer sérstaklega á óvart, en fín mynd. Á morgun kemur svo settið heim frá Rússlandi og hrefna frænka í heimsókn frá Danmörku. Á þriðjudag kemur svo Oddný Cara frá Englandi og verður hjá okkur í 2 vikur!!! Jey jey...gaman gaman:)
Until later......friður.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?